Innifalið í GRUNNSTYRK + ÞOL
- 12 vikna styrktarprógramm ásamt þolþjálfun
- Innri vefur með prógrammi ásamt allskonar fróðleik til að hjálpa þér í fjallgöngunum
- Lokaður Facebook hópur þar sem þjálfari svarar spurningum og þátttakendur deila sigrum og vandamálum
- Myndbönd af öllum æfingum ásamt góðum útskýringum með hverri æfingu.
Hvernig virkar þetta?
Þú stundar þína þolþjálfun, mætir í æfingar með gönguhópnum eða notar bara grunnstyrk + þol eitt og sér ef þú ert að koma þér af stað. Allt prógrammið finnur þá á þínum síðum en við mælum alveg klárlega með að bæta við app aðgangi, því appið er geggjað. Þar getur þú “syncað” við Garmin, Apple Watch, Fitbit og fleira þannig að þetta heldur utan um alla þína hreyfingu á einum stað. Svo getur þú alltaf sent mér línu og ég reyni að svara um hæl! Ekki er það nú verra 🙂
Við leggjum áherslu á einföld en áhrifarík prógrömm þar sem allur líkaminn er tekinn fyrir á flestum æfingum. Við viljum alls ekki eyða of miklum tíma í lyftingarnar og miðum við við að þú sért búin með æfinguna á innan við 45 mínútum. Að meðaltali reynum við að stefna á 2 styrktaræfingar á viku en það getur verið minna og meira eftir vikum. Eitt skipti er alltaf betra en ekki neitt.
Eftir 10 ár af prógrammagerð og þúsundir viðskiptavina vitum við hvað virkar og hvað virkar ekki. Við erum ekkert að flækja hlutina og eina sem þú þarft að gera er að reyna að gera betur í dag heldur en þú gerðir síðast. Appið sér svo um að þú vitir hvað þú eigir að gera til að gera betur en síðast og gefur þér high five fyrir allar bætingar 🙌 Ef þú bætir ekki við appinu þarftu sjálf/ur að sjá um að halda bókhaldið, því markmiðið er að bæta styrkinn og reyna alltaf að gera aðeins meira, þyngra eða betra en síðast.
Við bjóðum alltaf upp á útskiptiæfingar ef það er einhver æfing sem þú getur ekki gert af einhverri ástæðu og það þarf ekki mikinn búnað til að geta gert flestar æfingar heima.
Greiðsluferlið
Við greiðslu með kreditkorti færðu beint aðgang að innri vefnum undir “Mín síða” hérna ofar á síðunni. Þú færð svo boð í appið á fljótlega eftir að þú keyptir þannig aðgang.
Við greiðslu með millifærslu getur tekið 1-2 daga að virkja aðganginn þinn. Ef einhver annar millifærir fyrir þig er nauðsynlegt að senda nafn og email á þeim sem skráði sig.