Skúli er Grindvíkingur, heimshornaflakkari, fjallageit, fjölskyldumaður og einkaþjálfari með sjúkraþjálfunarmenntun.
Eftir að hafa skoðað heiminn eftir menntaskóla byrjaði Skúli í heilbrigðisverkfræði í HR árið 2008 en fann sig enganveginn þar. Hann hætti áður en fyrstu önninni var lokið og skráði sig strax í íþróttaakademíu Keilis og byrjaði í ÍAK einkaraþjálfaranáminu strax í janúar 2009. Hann fann sig mjög vel í því námi og ákvað að hann þyrfti að læra enn meira um mannslíkamann. Næsta skref var sjúkraþjálfun. Strax um vorið ákvað hann að prófa inntökuprófið til að sjá hverju hann ætti von á árið eftir. Hann var við það að gefast upp í prófinu en komst inn í námið. Eitthvað sem hann hafði ekki planað og búið sig undir.
Sjá fjallasögunaOkkar loforð
Við hverju máttu búast frá Fjallastyrk?
Prógrömmum og þjálfun hönnuð af fagmanni með mikla reynslu, bæði af fjallamennsku og þjálfun allskonar einstaklinga með allskonar stoðkerfisvandamál
Fjallgöngurnar verða auðveldari eftir þjálfun með okkur, mæði minnkar, skrokkurinn verður sterkari og fljótari að jafna sig eftir erfiðar göngur
Þú mátt búast við því að finna fyrir auknu sjálfstrausti og bættum styrk, ekki bara í fjallgöngunum heldur líka í daglegu lífi
Þjálfari gerir sitt besta til að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er, og nema eitthvað óvanalegt komi upp á máttu búast við svari á innan við sólarhring
Ef þú kaupir app aðgang og/eða sérsniðna fjallafjarþjálfun mun ég tékka reglulega á þér, veita þér aðhald og hjálpa þér að sníða þjálfunina að þínum þörfum
Þú færð alla þá aðstoð sem þú þarft til að þú náir fjallamarkmiðunum þínum. Ég set þína heilsu í fyrsta sæti og lofa að vísa þér áfram ef ég trúi að einhver annar gæti hjálpað þér betur í átt að þínum markmiðum.
Fréttabréf
Skráðu þig á póstlistann og fáðu alltaf nýjustu fréttir!
Fjallastyrkur
Þitt markmið er mitt markmið!
Ég trúi því að fólk sem stundar fjallgöngur geti grætt gríðarlega mikið á því að stunda markvissa styrktar- og þolþjálfun sérsniðna að markmiðum hvers og eins. Fjallastyrkur hjálpar þér að undirbúa þig fyrir alla þá óvissu sem fjöllin bjóða upp á, allt frá tognunum eða krömpum upp í aðlögun í mjög háum gönguferðum. Rétt þjálfun hámarkar líkurnar á að ná að klára göngurnar þínar, og njóta þess!
Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að ferðast eins mikið og ég get og finnst fátt skemmtilegra en að ganga og taka myndir í fallegu landslagi. Ég hef gengið nokkrar af fallegustu og þekktustu gönguleiðum á mörgum heimsálfum, meðal annars W í Patagoniu, Tour Du Mont Blanc, Grunnbúðir Everest, Inca Trail(Macchu Picchu) í Peru og að sjálfsögðu fullt af fjöllum og gönguleiðum hér á Íslandinu góða.
Mig langar að hjálpa þér að upplifa þessa tilfinningu að þjálfa fyrir eitthvað markmið til að vera sem best undirbúin/n og klára svo markmiðið með bros á vör!