Af hverju ætti ég að stunda markvissa styrktarþjálfun fyrir fjallgöngur? Hér er smá listi sem þjálfunin okkar hjálpar með. Styrktarþjálfun fyrir fjallgöngur getur…
- Aukið jafnvægi þannig að þú ert öruggari á göngu og líkurnar á meiðslum minnka ef þú rennur til.
- Minnkað líkur á beinhimnubólgu eða minnkað einkenni ef hún er til staðar.
- Gert það auðveldara að bera þungan bakpoka.
- Bætt gönguhraðann hjá þér þannig að þú kemst hærra hraðar.
- Minnkað mæði og bætt súrefnisupptöku.
- Gert þig öruggari í göngu á erfiðu undirlagi.
- Bætt beinþéttni.
- Minnkað “brauðfætur” niður fjallið.
- Minnkað eymsli daginn eftir krefjandi göngu.
- Aukið sjálfstraust, ekki bara í fjallgöngum heldur í daglegu lífi líka.
- Aukið styrk í stærstu og sterkustu vöðvum líkamans.
- Bætt insúlínnæmni, lækkað blóðþrýsting og almennt minnkað líkur á lífsstílstengdum sjúkdómum.
- Komið þér á þann stað að þú getir gengið marga daga í röð án þess að finna mikið fyrir því.
- Bætt svefn og líðan.
- Minnkað streitu og bætt andlega líðan.
Viltu upplifa marga af þessum kostum? Skráðu þig þá endilega í eitthvað af okkar prógrömmum og komdu þér af stað í Fjallastyrk!